top of page
1000007406.jpg

Garðyrkjubú Móður Jarðar að Vallanesi í Fljótsdalshéraði

Vorið 2025 setti Alor upp sólarorkukerfi á þak kyndistöðvarinnar að garðyrkjubúi Móður Jarðar að Vallanesi í Fljótsdalshéraði. Kerfið samanstendur af 27 sólarsellum með 11,3 kW uppsettu afli og 10 kWst rafhlöðu sem staðsett er inni í byggingunni. Um er að ræða fyrsta sólarorkukerfi á garðyrkjubúi á Íslandi og er áætlað að kerfið framleiði um 10.000 kWst á ári.

​​

Sólarorkerfið er tengt við raforkukerfið til þess að tryggja stöðugt aðgengi að rafmagni. Þegar birtan er næg er sólarorkan í forgangi og knýr rekstur búsins beint. Yfir bjartasta tímann er sólarorkuframleiðslan stundum umfram notkun á hverjum tíma og þá er rafmagninu safnað í rafhlöðu svo unnt sé að nota þegar sólarorku nýtur ekki við. Þetta hámarkar nýtni kerfisins. Þegar rafhlaðan tæmist, skiptir kerfið sjálfkrafa yfir á raforkukerfið og kaupir rafmagn þaðan eftir þörfum.

​

Hönnun og  uppsetning kerfisins var í höndum Alor og rafmagnstengingar unnar af hálfu Tengils ehf., samstarfsaðila Alor. Verkefnið er hluti af tilraunaverkefni Alor þar sem fjögur sveitabýli víðsvegar um landið taka þátt en þau eru öll með ólíkan búrekstur. Tilgangur tilraunaverkefnisins er að safna rauntölum úr framleiðslu sólarorku og geymslu hennar á bæjunum og nýta gögnin til þess að miðla þekkingu á sannreyndri tækni. Gögnin verða jafnframt notuð til að bera saman hagkvæmni kerfanna eftir mismunandi búrekstri og draga ályktanir um hagkvæmni þeirra. Þá er það markmið verkefnisins að draga úr notkun rafmagns í raforkukerfinu og þannig létta álagi á kerfið. Kerfið mun veita tímabundið varaafl vegna rafmagnstruflana og þar með minnka þörf á olíuknúnum rafstöðvum. Verkefnið styður þannig við orkuskipti og styrkir afhendingaröryggi rafmagns á landsvísu. Þá er verkefnið hugsað sem liður í að auka orkusjálfstæði bænda og leggja grunn að því að þeir selji raforku inn á dreifikerfið, sem myndi skapa nýja tekjustoð fyrir búreksturinn.

​

Tilraunaverkefnið hefur hlotið styrk úr Orkusjóði og Lóu - nýsköpunarsjóði fyrir landsbyggðina. 

33-1.jpg
1000007349.jpg
1000007420.jpg
bottom of page